Fyrir fyrirtæki
Þegar eitthvað gerist þarf réttu upplýsingarnar strax
Þegar ökumaður á ykkar vegum lendir í óhappi, bilun eða tjóni leiðbeinir Meda honum skref fyrir skref. Þið fáið myndir, staðsetningu og lýsingu frá vettvangi, tilbúnar til vinnslu.
Ekkert app, engin flókin skráning.
- Ökumaðurinn
- fær leiðsögn á vettvangi, beint í vafranum.
- Þið
- fáið skipulegar upplýsingar, tilbúnar til vinnslu.
Ef einhver er slasaður skaltu hringja í 112. Meda kemur ekki í stað neyðarlínu.
Frá vettvangi til réttra aðila
Frá því að eitthvað gerist þar til upplýsingarnar eru komnar til þeirra sem þurfa á þeim að halda.
Ökumaðurinn
Leiðsögn á vettvangi
Ökumaðurinn opnar Meda í símanum og fær eitt skref í einu, frá öryggisspurningu til mynda.
Meda
Myndir, staðsetning og lýsing á einum stað
Meda safnar upplýsingunum saman á meðan ökumaðurinn er á vettvangi. Ekkert er sent fyrr en ökumaðurinn staðfestir.
Móttakandinn
Gögnin áfram til vinnslu
Upplýsingarnar eru aðgengilegar á vinnusvæði Meda eða sendar beint inn í ykkar kerfi.
Myndir og lýsing frá vettvangi, áður en síminn hringir
Þegar viðskiptavinur eða starfsmaður lendir í atviki eru upplýsingarnar skráðar á staðnum, í stað þess að þær séu teknar saman eftir á.
Þegar upplýsingar eru skráðar eftir á dreifast þær auðveldlega á símtöl, tölvupósta og einstakar myndir. Þá þarf oft að hafa aftur samband til að fá það sem vantar.
Það sem fylgir málinu
- Tegund atviks og tímasetning
- Myndir teknar eftir leiðbeiningum
- Staðsetning úr síma ökumanns, með samþykki
- Lýsing ökumanns í hans eigin orðum
- Upplýsingar um hvar tjónið er á ökutækinu
- Upplýsingar frá hinum ökumanninum í árekstri

Hvernig Meda virkar
Opnar Meda
Með QR-kóða eða tengli.
Svarar öryggisspurningu
Meda byrjar á því sem skiptir mestu máli.
Skráir það sem gerðist
Myndir, staðsetning og stutt lýsing eftir því hvað gerðist.
Staðfestir og sendir
Ökumaðurinn sér hvað verður sent áður en upplýsingarnar fara áfram.
Svona einfalt er þetta fyrir ökumanninn
Ökumaðurinn þarf ekki að þekkja Meda fyrirfram. Hann opnar Meda þegar á þarf að halda og fær eitt skref í einu í vafranum.
Ekkert app, engin flókin skráning.
Meda er til staðar þegar á þarf að halda
QR-kóði í bílnum
Ökumaðurinn skannar kóðann með myndavélinni og Meda opnast strax.
Tengill í SMS
Bílaleigan, vinnuveitandinn eða þjónustuaðilinn sendir ökumanninum tengil þegar á þarf að halda.
Opnast beint í vafranum. Ekkert að setja upp og ekkert að skrá sig inn.
Gögn og persónuvernd
- Ökumaðurinn sér hvað verður sent áður en hann staðfestir.
- Gögn eru dulkóðuð.
- Aðgangi er stýrt.
- Varðveisla gagna ræðst af samningi og eðli máls.
Hvernig Meda nýtist hjá ykkur
Meda nýtist þar sem ökumaður skráir atvik á vettvangi og upplýsingarnar þurfa að komast hratt áfram til þeirra sem vinna málið.
Fyrirtæki með bíla í rekstri
Meda hjálpar fyrirtækjum og stofnunum að halda utan um atvik á eigin flota, líka þau sem fara ekki áfram til tryggingafélags.
Bílaleigur
Viðskiptavinur lendir í tjóni eða óhappi og skráir atvikið í Meda á staðnum. Þegar bílnum er skilað eru myndirnar, staðsetningin og lýsingin þegar komin til ykkar.
Tryggingafélög
Tjónateymið fær mál þar sem myndir, staðsetning og lýsing liggja fyrir frá vettvangi. Minni tími fer í að elta upplýsingar eftir á.
Vegaaðstoð
Í mótunVið skoðum hvernig skráning í Meda getur fylgt beiðni um aðstoð. Þetta er enn í mótun.
Það þarf ekki stórar breytingar til að byrja
Þið ákveðið hvernig ökumaðurinn opnar Meda og hvernig upplýsingarnar berast ykkur. Hægt er að byrja einfalt og bæta við kerfistengingu síðar.
- QR-kóði eða tengill fyrir ökumann
- Vinnusvæði Meda fyrir starfsfólk ykkar
- Beint inn í ykkar kerfi þegar það á við
- Byrja einfalt
- Prófa á afmörkuðum hluta
- Mæla niðurstöðuna
- Ákveða næsta skref
Byrjum á afmarkaðri tilraun
Hluti flotans, ein tegund tjóns eða einn þjónustuferill. Á nokkrum vikum sjáum við svart á hvítu:
Bóka kynningu- hve margir ökumenn klára skýrsluna
- hvort starfsfólk getur unnið málið án þess að hringja til baka
- hversu mikið símtölum og tölvupóstum fækkar
- hvaða tenging við ykkar kerfi skiptir mestu
Meda er þróuð af fólki sem hefur unnið lengi við tjónaferli og stafræna þjónustu. Við hönnuðum hana með ökumanninn í huga, svo upplýsingarnar séu tilbúnar til vinnslu þegar þær berast ykkur.
Algengar spurningar
Fyrirtæki
Er hægt að byrja án kerfistengingar?
Já. Tilraun getur byrjað með vinnusvæði Meda einu og kerfistenging getur komið síðar.
Kemur Meda í stað okkar kerfa?
Nei. Meda sér um fyrstu skráningu á vettvangi og afhendir ykkur tilbúin gögn. Þið vinnið málið áfram í ykkar eigin kerfum eins og áður.
Fyrir hverja er Meda?
Fyrir þá sem bera ábyrgð á bílum sem aðrir aka. Meda nýtist best þegar atvik verða úti á vegi og skráningin þarf að gerast á staðnum.
Hvernig er farið með gögnin?
Ökumaður staðfestir alltaf áður en nokkuð er sent. Gögn eru dulkóðuð og geymd innan Evrópu. Aðgangi er stýrt og varðveislutími ræðst af samningi við ykkur.
Ökumenn
Þarf að hlaða niður appi?
Nei. Meda virkar beint í vafranum í símanum.
Hvað ef einhver er slasaður?
Hringdu í 112. Meda kemur ekki í stað neyðarlínu.
Tekur Meda ákvörðun um sök eða bætur?
Nei. Meda hjálpar þér að skrá upplýsingar. Meda metur ekki sök og ákveður ekki bætur.
Er Meda fyrir ferðamenn?
Já, Meda er hugsuð fyrir alla ökumenn á Íslandi, bæði Íslendinga og gesti. Íslenska og enska eru grunnmál.
Hver sér upplýsingarnar?
Þú sérð hvað verður sent og hvert áður en þú staðfestir. Nánari upplýsingar eru í persónuverndarstefnu Meda.
Fylgstu með þróun Meda
Við erum að þróa Meda og viljum leyfa áhugasömum að fylgjast með. Skráðu þig og fáðu öðru hverju fréttir af þróuninni, nýjum eiginleikum og næstu skrefum.